Leikhópurinn hefur nú verið myndaður og samanstendur af 7 manns.
Saga Þórsdóttir
Jón Arnór Pétursson
Andri snær Einarsson
Baldur Björn Arnarsson
Jörundur Orrason
María Pála Marcello
Svanhildur Nielsen Hlynsdóttir
(Frá vintstri til hægri)
Leikstjórn Egill Andrason og Mikael Emil Kaaber
Verkið fjallar um vinahóp úr Verzló sem hafa haldið sambandi eftir skólagöngu sína. Einn daginn fara þau öll saman í matarboð og þar stinga þau upp á stórhættulegum samkvæmisleik sem virkar þannig að allir setja símana sína á borðið og lesa öll skilaboð upphátt, sýna allar myndir og svara öllum simtölum á speaker. Þar koma upp allskyns leyndarmál sem hefðu aldrei frést ef ekki hefði verið fyrir leikinn. Þessi sýning er alveg bráð fyndið og dramatísk þar sem ástarsambönd eyðileggjast og vinasamband slítast í sundur. Verk sem svo sannarlega heldur öllum á tánum og hjartanu á hundrað!
Comments